Murray auðveldlega áfram

Andy Murray.
Andy Murray. AFP

Skotinn Andy Murray er kominn áfram í 3. umferð í einliðaleik karla á Wimbledon mótinu í tennis sem stendur sem hæst í London.

Murray vann í dag öruggan sigur á Hollendingnum Robin Haase í þremur settum, 6:1, 6:1 og 6:4. Hann mætir annað hvort Ítalanum Andreas Seppi eða Króatanum unga Borna Coric í 3. umferðinni á laugardaginn.

Murrey hefur einu sinni fagnað sigri á Wimbledon en það gerði hann árið 2013

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert