Stjarnan felld á ný af lítt þekktum keppanda

Dustin Brown fagnar sigrinum af innlifun.
Dustin Brown fagnar sigrinum af innlifun. AFP

Spánverjinn Rafael Nadal er úr leik á Wimbledon-mótinu í tennis eftir að hafa tapað fyrir Þjóðverjanum Dustin Brown í dag.

Brown er í 102. sæti heimslistans, en þetta er fjórða árið í röð sem Nadal fellur úr leik á risamótinu gegn andstæðingi sem er ekki á topp 100. Sjálfur er Nadal í tíunda sæti listans og hefur unnið fjórtán risamót á ferlinum.

Þetta er í þriðja sinn sem Brown vinnur andstæðing á topp tíu listanum, en hann hefur meðal annars áður skellt Nadal. Hann er einungis einn af tveimur sem hafa keppt oftar en einu sinni við Nadal og ekki tapað, en hinn er Alex Corretja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert