Hulda Þorsteinsdóttir úr ÍR stökk í dag 4,26 metra í stangarstökki á VU Spelen-mótinu á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg. Mótið er fjölmennasta opna frjálsíþróttamót sem haldið er á Norðurlöndum ár hvert og margir tugir Íslendinga að keppa á mótinu um helgina.
Hulda flaug hátt yfir 4,26 metra en tókst ekki að fara yfir 4,35 metra enda að reyna sig á stífari og lengri stöngum en hún er vön. Hún hafnaði að lokum í öðru sæti af 19 keppendum.
Á sunnudaginn keppir Hulda aftur í boðshluta stangarstökks kvenna. Alls eru keppendur á mótinu 3.500 frá 20 löndum.