Federer á réttri braut

Roger Federer slær í leiknum í dag.
Roger Federer slær í leiknum í dag. AFP

Svisslendingurinn Roger Federer er kominn í sextán manna úrslit Wimbledon-meistaramótsins í tennis eftir að hafa lagt Sam Groth í þriðju umferð mótsins í dag.

Hinn ástralski Groth var frábær í uppgjöfum sínum og styrkurinn var svo mikill að hann náði næst hröðustu uppgjöf í sögu mótsins í leiknum í dag.

Það var þó ekki nóg til þess að leggja sjöfaldan meistara Federer, sem mætir hinum spænska Roberto Bautista í sextán manna úrslitunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert