Frestað í endurkomu þess besta

Novak Djokovic í leiknum í kvöld.
Novak Djokovic í leiknum í kvöld. AFP

Fresta þurfti leik Novaks Djokovic og Kevin Anderson í sextán manna úrslitum Wimbledon-mótsins í tennis í kvöld eftir að taka fór að skyggja.

Djokovic sem á titil að verja tapaði tveimur fyrstu settunum gegn hinum ástralska Anderson, báðum eftir upphækkun, og var kominn með bakið upp við vegginn fræga. Hann vann hins vegar næstu tvö sett 6:1 og 6:4, en þá þurfti að stoppa leikinn fyrir oddasettið vegna myrkurs.

Djokovic, sem hafði ekki tapað setti í fyrri leikjum sínum á mótinu, vildi ólmur halda áfram leik enda í miklu stuði eftir endurkomuna, en fékk ekki sínu framgengt. Þeir munu leika oddasettið í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert