Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH keppti til úrslita í 400 metra hlaupi stúlkan 15 og 16 ára á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Tbilisi í Georgíu í gær og náði þeim sögulega árangri að hafna í fimmta sæti í hlaupinu.
Þórdís Eva er fimmtán ara gömul og því á fyrra ári aldursflokknum, en hún kom í mark á tímanum 56,24 sekúndum sem er betri tími en hún hljóp á í riðlakeppninni.
Besti árangur Þórdísar Evu er 54,80 sekúndur og er hún í 11. sæti afrekslistans í 400 metra hlaupi yfir bestu tíma í Evrópu í flokki stúlkna 15 og 16 ára. Aðeins ein stúlka á yngra ári eins og Þórdís er ofar en hún á listanum í ár.