Almaz Ayana sigraði með yfirburðum

Almaz Ayana á lokasprettinum í 5000 metra hlaupinu í dag.
Almaz Ayana á lokasprettinum í 5000 metra hlaupinu í dag. AFP

Eþíópíska hlaupakonan Almaz Ayana varð rétt í þessu heimsmeistari í 5000 metra hlaupi á nýju meistaramótsmeti 14:26,83. Ayana bætti þar með meistaramótsmet Tirunesh Dibaba um leið og hún sigraði yngri systur hennar Genzebe Dibaba í hlaupinu í dag. 

Ayana sem er ríkjandi Afríkumeistari í greininni hafði nokkra yfirburði á aðra hlaupara í hlaupinu.

Það var þrefaldur eþíópískur sigur í hlaupinu, en Senbera Teferi varð önnur á 14:44,07 og Genzebe Dibaba þriðja á 14:44,14.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert