Maradona stígur trylltan dans - myndskeið

Diego Armando Maradona er í miklu stuði í Englandi þessa …
Diego Armando Maradona er í miklu stuði í Englandi þessa dagana.

Knattspyrnugoðsögnin Diego Armando Maradaona er mikill stuðningsmaður rugbyliðs Argentínu. Maradona er mættur til Englands til þess að fylgjast með argentínska liðinu á heimsmeistaramótinu sem haldið er þar í landi þessa dagana.

Leikmenn argentínska liðsins þökkuðu Maradona fyrir stuðninginn með því að hleypa honum inn í búningsklefa liðsins eftir sigurleik liðsins gegn Tonga. Maradona steig þar trylltan dans með leikmönnum eins og sjá má í myndskeið hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert