Fremsta tenniskona heims, Serena Williams, er ekki að rugla saman reytum með kanadíska rapparanum Drake, en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fjölmiðlafulltrúa Serenu.
Serena, sem er 34 ára gömul, hefur verið besta tenniskona heims undanfarin ár en hún er í efsta sæti heimlistans. Hún hefur unnið öllu stærstu mótin undanfarin ár en hún var nálægt því að vinna öll fjögur stórmótin á þessu ári.
Hún tapaði óvænt í undanúrslitum á Opna bandaríska mótinu fyrir Robertu Vinci en ítalska tenniskonan tapaði síðan fyrir Flaviu Pennetta í úrslitum.
Bandarískir fjölmiðlar hafa birt myndir af henni ásamt kanadíska rapparanum, Drake, undanfarna mánuði en þau sáust kyssast á veitingastað í Cincinnati í Ohio. Hún mætti þá til Toronto þar sem hún var viðstödd opnun á nýjum veitingastað sem er í eigu Drake. Þá var hann mættur á Opna bandaríska mótið til þess að styðja tenniskonuna.
Fjölmiðlafulltrúi Serenu gaf út yfirlýsingu í gær þar sem þessum sögusögnum er vísað á bug en að þau séu hins vegar afar góðir vinir. Bandarískir fjölmiðlar eru þó ekki sannfærðir og halda því samt sem áður fram að þau séu að hittast.