SR hafði betur í miklum markaleik

Robbie Sigurðsson skoraði tvö og lagði upp þrjú hjá SR …
Robbie Sigurðsson skoraði tvö og lagði upp þrjú hjá SR í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skautafélag Reykjavíkur og UMFK Esja áttust við í Hertz-deild karla í íshokkí í miklum markasúpuleik í kvöld. Leiknum lauk með sigri SR-inga sem gerðu átta mörk gegn fimm mörkum Esjumanna.

SR-ingar byrjuðu miklu betur og komust í 3:0 forystu í fyrstu lotunni en á meðan stóð ekki steinn yfir steini hjá leikmönnum Esju. Esjumenn sneru hinsvegar blaðinu við strax í annarri lotu og jöfnuðu leikinn á fyrstu tólf mínútum annarrar lotu. Jöfnunarmark Esju skoraði Egill Þormóðsson en þá var liðið tveimur mönnum færri á ísnum.

SR-ingar náðu þó að komast yfir fyrir lotulok eftir að Milan Mach komst einn inn fyrir vörn Esjumanna. Þriðja lotan var svo á svipuðum nótum og hinar tvær en alls komu sex mörk í henni. Jafnt var á með liðunum 5:5 en en seinni part lotunnar sigu SR-ingar framúr og skoruðu síðustu þrjú mörk leiksins.

Með sigrinum halda SR-ingar sér inn í því að komast inn í úrslitakeppnina en liðið er nú sex stigum á eftir Esju sem er í öðru sæti. Hertz-deildin hjá körlunum er nú komin í stutt frí en næst verður leikið 15. Desember.

Mörk/stoðsendingar SR:
Robbie Sigurðsson 2/3
Bjarki Reyr Jóhannesson 2/1
Milan Mach 2/0
Michal Danko 1/1
Daníel Steinþór Magnússon 1/1
Jón Andri Óskarsson 0/1
Tómas Tjörvi Ómarsson 0/1
Styrmir Friðriksson 0/1

Refsingar SR: 10 mínútur.

Mörk/stoðsendingar UMFK Esju:
Egill Þormóðsson 1/1
Þórhallur Viðarsson 1/0
Óskar Einarsson 1/0
Hjalti Jóhannsson 1/0
Róbert Freyr Pálsson 1/0
Brynjar Bergmann 0/2
Gunnar Guðmundsson 0/1
Einar Sveinn Guðnason 0/1

Refsingar UMFK Esju: 64 mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert