Tímabilinu lokið hjá Helgu Maríu

Helga María Vilhjálmsdóttir keppir ekki meira í vetur.
Helga María Vilhjálmsdóttir keppir ekki meira í vetur. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Helga María Vilhjálmsdóttir, landsliðskona í alpagreinum, hefur orðið fyrir miklu áfalli og mun ekki geta keppt meira á þessu keppnistímabili.

Helga María fékk högg á hné í síðasta móti og í dag kom í ljós að hún er með slitið krossband. Hún mun fljótlega gangast undir aðgerð og eftir það tekur við langt endurhæfingarferli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert