Sigurjón kjörinn varaforseti IPF

Sigurjón Pétursson, formaður Kraftlyftingasambands Íslands og varaforseti Alþjóða kraftlyftingasambandsins
Sigurjón Pétursson, formaður Kraftlyftingasambands Íslands og varaforseti Alþjóða kraftlyftingasambandsins Ljósmynd / kraft.is

Sigurjón Pétursson, formaður Kraftlyftingasambands Íslands, var á nýliðnu ársþingi Alþjóða kraftlyftingasambandsins sem haldið var í Lúxemborg kjörinn varaforseti sambandsins.

Sigurjón bauð sig fram gegn sitjandi varaforseta og hlaut glæsilega kosningu eða 74% greiddra atkvæða

Sigurjón hefur undanfarin misseri gegn hlutverki formanns aganefndar Alþjóða kraftlyftingasambandsins og áunnið sér traust og virðingu fyrir mikla vinnu og vönduð vinnubrögð sem skilaði sér í þessari kosningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert