Neðsta liðið vann það efsta

Úr leik Víkinga og Bjarnarins á Akureyri í kvöld.
Úr leik Víkinga og Bjarnarins á Akureyri í kvöld. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

SA-Víkingar og Björninn buðu upp á sannkallaðan markaleik þegar liðin mættust í Hertz-deildinni í íshokkí karla á Akureyri í kvöld. Lokatölur 5:8 fyrir gestina úr Reykjavík.

Björninn byrjaði með látum og komst í 0:2 eftir þrjár mínútur og gaf það tóninn fyrir það sem á eftir kom. SA jafnaði strax á níundu mínútu en Bjarnarmenn komust í 2:3 áður en fyrsta leikhluta lauk. Þeir bættu svo við marki en SA skoraði tvö mörk á mínútu og jafnaði í 4:4. Næstu tvö mörk voru svo Bjarnarins og staðan var 4:6 fyrir lokaleikhlutann. Þar bætti Björninn bara í og komst í 4:8 áður en heimamenn náðu að laga stöðuna lítið eitt. Lokatölur urðu 5:8 og endaði annars góð skemmtun með slagsmálum og látum.

Með sigrinum kom Björninn sér af botni Hertz deildarinnar en liðið hefur nú 20 stig, tveimur meira en SR sem á þó leik til góða. Sjö stigum fyrir ofan Björninn situr svo Esja, sem rétt einsog SR á leik til góða en sá leikur fer fram nk. þriðjudag í Skautahöllinni í Laugardal.

Bjarnarmenn voru mjög beittir og ákveðnir í leiknum og þeir ætla greinilega að gera atlögu að sæti í úrslitakeppninni þótt enn séu Esja og SA töluverðan spotta frá þeim. 

Mörk/stoðsendingar:

SA: Jussi Sipponen 2/0, Sigurður Freyr Þorsteinsson 1/0, Helgi Gunnlaugsson 1/0, Mario Mjelleli 1/0, Sigmundur Sveinsson 0/1, Hafþór Sigrúnarson 0/1, Heiðar Kristveigarson 0/1, Jón Benedikt Gíslason 0/1, Björn Már Jakobsson 0/1.

Björninn: Egan Ryley 4/2, Falur Guðnason 2/0, Úlfar Andrésson 1/2, Eric Anderberg 1/1, Andri Helgason 0/2, Kópur Guðjónsson 0/1, Birkir Árnason 0/1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert