Fín frammistaða Kára í Bandaríkjunum

Bestur Kári Gunnarsson.
Bestur Kári Gunnarsson. mbl.is/Golli

Kári Gunnarsson féll naumlega úr leik á MBBC USA International-mótinu í badminton í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum í dag. Kári sló út andstæðing sinn í fyrsta umferð en tapaði naumlega í annarri umferð. 

Kári keppti í fyrstu umferð gegn Dean Schoppe frá Bandaríkjunum. Kári vann hann auðveldlega 21:8 og 21:6.

Í annarri umferð mætti Kári Howard Shu sem er einnig frá Bandaríkjunum og er númer 64 á heimslista. Kári átti mjög góðan leik en tapaði naumlega í oddalotu 15:21, 22:20 og 20:22. Kári lauk þar með þátttöku í mótinu.

Sigur Kára í fyrstu umferð ætti að skila honum einhverjum stigum á heimslistanum en Kári freistar þess að vinna sér inn keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Ríó. 

Job Castillo frá Mexíkó sem keppti á Iceland International um síðustu helgi sló síðan Shu út í þriðju umferð en hann vann 21:14 og 21:18 og er þar með kominn í undanúrslit.

Luis Ramon Garrido sem einnig keppti hér á Iceland International komst í átta manna úrslit á þessu móti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert