Rafn Kumar lék í Ísrael í dag

Rafn Kumar Bonifacius er í eldlínunni í Ísrael.
Rafn Kumar Bonifacius er í eldlínunni í Ísrael. Eggert Jóhannesson

Tenniskappinn Rafn Kumar Bonifacius laut í lægra haldi gegn Bandaríkjamanninum John Lamble, 6-2, 6-0 í annarri umferð forkeppni atvinnumóts í Tel Aviv, Ísrael í dag. 

Lamble sem er í 1.103. sæti á heimslistanum í tennis, keppir síðan næst um sæti í aðalmótinu gegn Gabor Borsos sem er í 799. sæti heimslistans.  

Rafn Kumar bíður hins vegar eftir að komast inn í næsta atvinnumót í Tel Aviv sem hefst næstkomandi laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert