Ingi Rúnar Kristinsson úr Breiðabliki varð í dag Íslandsmeistari í tugþraut og Ásgerður Jana Ágústsdóttir úr UFA í sjöþraut en MÍ í fjölþraut lauk á Selfossi í dag.
Ingi hlaut 6.868 stig í tugþrautinni og Ásgerður 4.854 stig í sjöþrautinni. Irma Gunnarsdóttir úr Breiðabliki var með forystu eftir fyrri keppnisdaginn en Ásgerður komst fram úr henni á síðari keppnisdeginum í dag.
Fleiri úrslit má finna á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins.