Myndi skilja við konuna fyrir titilslag

Lee Selby (t.v.)
Lee Selby (t.v.)

Lee Selby, heimsmeistari í fjaðurvigt í hnefaleikum, er afar ósáttur með ákvörðun Josh Warrington að velja eigið brúðkaup fram yfir bardaga við Selby um titilinn í sumar.

„Hann klúðraði þessu. Línan hefur verið dregin, hann missti af sínu tækifæri,“ sagði Selby sem hét því að þeir myndu ekki mætast aftur.

„Ef mér væri boðinn titilbardagi og ég væri ekki meistari, þá væri ég tilbúinn að skilja við konuna mína fyrir slaginn. Það er sannleikurinn,“ sagði Selby en Warrington hyggst gifta sig í ágúst. Honum þótti bardaginn, sem átti að fara fram í lok júlí, vera of nálægt brúðkaupsdeginum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert