Þúsundir gengu niður á strönd

Íslenskir og ungverskir stuðningsmenn streymdu frá miðbænum niður á strönd í Marseille eftir hádegi í dag til þess að hita upp fyrir leikinn í kvöld. Þúsundir manna eru þar saman komnar í því sem kallað er Fan Zone, sérstöku svæði fyrir stuðningsmenn þar sem þeir geta skemmt sér og öðrum, meðal annars með því að fara í alls kyns leiki.

Attachment: "" nr. 9946

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert