Slakt gengi í þrímenningi á EM í keilu

Frá Evrópumótinu í Brussel.
Frá Evrópumótinu í Brussel. Ljósmynd/Guðjón Júlíusson

Íslenska keilulandsliðið lauk þrímenningskeppni á EM í keilu í gærkvöldi en keppnin fer fram í Brussel í Belgíu.

Íslensku strákunum gekk ekki nógu vel en Ísland 1, skipað þeim Skúla Frey Sigurðssyni, Bjarna Páli Jakobssyni og Arnari Davíð Jónssyni, endaði í 33. sæti en Ísland 2, skipað Guðlaugi Valgeirssyni, Gústafi Smára Björnssyni og Stefáni Claessen, endaði í 63. sæti.

Evrópumeistarar í þrímenningi urðu Danir en þeim hefur gengið mjög vel á þessu móti. Þeir unnu Þjóðverja í úrslitum 687-651. Í þriðja til fjórða sæti urðu svo Svíar og Norðmenn.

Liðið er nú komið með bakið upp við vegg varðandi að ná sæti sem gefur leikheimild á HM í Kuwait á næsta ári. Gefin eru stig fyrir hverja grein, einstaklins-, tvímennings-, þrímenningskeppni sem og keppni 5 manna liða. Keppni 5 manna liða hefst á morgun. Þar þurfa strákarnir að lenda í a.m.k. 10. sæti til að ná þessu markmiði, að komast á HM í Kúveit. Strákarnir hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit enn sem komið er en nú er að duga eða drepast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert