„Þetta var erfiður andstæðingur, en mér leið eins og ég væri með yfirhöndina allan bardagann,“ sagði bardagakonan Sunna Rannveig Davíðsdóttir sem varð í nótt fyrsta íslenska konan til að berjast í atvinnubardaga í blönduðum bardagaíþróttum, MMA. Hún sigraði þá Ashley Greenway eftir að hafa haft betur í öllum þremur lotunum.
Sjá frétt mbl.is: Sunna Rannveig vann öruggan sigur.
„Mér leið ofboðslega vel satt að segja þegar ég gekk inn í búrið. Þó svo að þetta hafi verið fyrsti atvinnubardaginn minn og samkvæmt því þá hefði alveg verið eðlilegt að það væri einhver skjálfti í mér, þá er þetta ekki í fyrsta sinn sem ég fer í búr til að berjast og ég vissi alveg út í hvað ég var að fara,“ sagði Sunna í tilkynningu eftir bardagann.
Sunna kom alveg ósködduð út úr viðureigninni og fagnaði sigrinum með liði sínu strax að honum liðnum. „Eftir að bardaganum lauk þá byrjaði ég á að hringja í mína nánustu og láta vita af mér ásamt því að skófla í mig helli krukku af Nutella sem ég tók með mér heiman frá Íslandi. Eftir það þá fórum við Mjölnisfólkið saman á The Cheesecake Factory og fengum okkur vel að borða. Við, fjögur talsins, pöntuðum 12 ostakökusneiðar á borðið og kláruðum þær allar,“ segir Sunna.
Fór til Írlands til æfinga
Undirbúningur Sunnu fyrir bardagann hófst í júlí. „Ég var búin að fá nokkuð skýrar upplýsingar um að það væri búið að finna fyrir mig andstæðing og að það væri verið að vinna í því að staðfesta bardaga í september. Ég ákvað að hefja strax þá undirbúninginn og fór til Írlands til vinar míns, Paddy Holohan, sem hafði boðið mér að koma og æfa með sér og sínu liði þar. Þetta var frábært upphaf á æfingabúðum sem síðan héldu áfram með mínum liðsfélögum í Mjölni,” segir Sunna.
„Samhliða stífum æfingabúðum þá þurfti Sunna að skafa af sér nokkur kíló og fékk til liðs við sig næringarráðgjafann Lindsey Doyle sem sérhæfir sig í að leiða bardagakonur í gegnum næringar og þyngdarlosunarferli. “Ég fékk ábendingu um Lindsey og ákvað að setja mig í samband við hana. Ég sé sko ekki eftir því. Mér leið vel í öllu ferlinu og mun klárlega gera þetta eins næst.“
Næstu skref Sunnu eru óráðin en líklegt verður að teljast að henni verði boðið að berjast fljótt aftur. „Ég hlakka til að koma heim, hitta fólkið mitt og verja nokkrum dögum með þeim. Spjalla, hlæja og hafa það gott. Síðan er það bara beint aftur inn í æfingasalinn. Ég tek með mér gríðarlega góða reynslu úr þessum fyrsta bardaga og get varla beðið eftir því að fara í þann næsta. Ég verð tilbúin þegar síminn hringir,“ segir Sunna Rannveig Davíðsdóttir.