Sonja og Helgi valin í þriðja sinn

Sonja Sigurðardóttir og Helgi Sveinsson með verðlaun sín á hófinu …
Sonja Sigurðardóttir og Helgi Sveinsson með verðlaun sín á hófinu í dag. mbl.is/Ófeigur

Sonja Sigurðardóttir, sundkona úr ÍFR, og Helgi Sveinsson, spjótkastari úr Ármanni, voru í dag útnefnd íþróttafólk ársins úr röðum fatlaðra á hófi Íþróttasambands fatlaðra á Hótel Sögu.

Þetta er í þriðja sinn sem Sonja er kjörin íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra, en hún var einnig valin árin 2008 og 2009. Helsta afrek Sonju á árinu var Íslandsmet hennar í 50 m baksundi á Ólympíumóti fatlaðra í Ríó í Brasilíu. Sonja komst þá í úrslit í greininni og setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet er hún kom í bakkann á tímanum 59,97 sek. Sonja hafnaði í 8. sæti í keppninni.

Sonja Sigurðardóttir með verðlaun sín í dag. Hjá henni er …
Sonja Sigurðardóttir með verðlaun sín í dag. Hjá henni er Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF. mbl.is/Ófeigur

Sonja keppti á þremur alþjóðlegum stórmótum á árinu. Bar þar hæst vitaskuld þátttaka hennar á Ólympíumótinu en hún keppti einnig á opna þýska meistaramótinu og Evrópumeistaramótinu í Portúgal.

Þjálfarar Sonju í gegnum tíðina hafa verið þeir Jón Heiðar Jónsson, Halldór Guðbergsson, Erlingur Þ. Jóhannsson og núverandi þjálfari hennar hjá ÍFR er Tomas Hajek.

Evrópumeistari og fimmti í Ríó

Helgi Sveinsson var einnig valinn í þriðja sinn. Helgi var fyrst valinn íþróttamaður ársins árið 2013 og aftur á síðasta ári. Helsta afrek Helga í ár var Evrópumeistaratitill í spjótkasti í sameiginlegum flokki F-42,43 og 44 sem og hörð barátta hans í úrslitum spjótkastkeppninnar á Ólympíumótinu þar sem hann hafnaði í 5. sæti á nýju ólympíumeti er hann kastaði spjótinu 53,96 metra.

Helgi Sveinsson með verðlaun sín á Hótel Sögu í dag.
Helgi Sveinsson með verðlaun sín á Hótel Sögu í dag. mbl.is/Ófeigur

Þjálfari Helga í dag er Kári Jónsson en þjálfarar frá upphafi eru áðurnefndur Kári, Guðmundur Hólmar Jónsson og Einar Vilhjálmsson.

Jón Margeir hættur og fékk afreksskjöld

Stjórn ÍF veitti Jóni Margeiri Sverrissyni afreksskjöld sambandsins fyrir sitt framlag til íþrótta fatlaðra. Jón er á meðal fremstu afreksmanna Íslendinga og hefur ákveðið að hætta afrekssundmennsku sinni. Í reglugerð um heiðursmerki ÍF segir:

„Afreksskjöldur ÍF er silfurmerki á silfurskildi, borið í borða með íslensku fánalitunum. Skal aðeins veita þeim, sem vinna frábær íþróttaafrek og hljóta verðlaun á alþjóðlegum stórmótum.“

Jón Margeir með gullverðlaun sín á Ólympíumótinu í Ríó 2012.
Jón Margeir með gullverðlaun sín á Ólympíumótinu í Ríó 2012. Ljósmynd/Heiða

Jón Margeir náði hámarki ferils síns þegar hann vann til gullverðlauna á Ólympíumótinu 2012 í London. Setti Jón þá nýtt ólympíumet og um leið heimsmet í 200 m skriðsundi í flokki S-14, flokki þroskahamlaðra.

Í tilkynningu ÍF segir: Ferill Jóns er einkar glæsilegur og hefur hann verið mörgum íþróttamanni úr röðum fatlaðra innblástur í sinni íþróttaiðkun sem og fyrirtaks fulltrúi íþrótta bæði hér innanlands sem og erlendis. Það er stjórn ÍF heiður að sæma Jón Margeir afreksskildi sambandsins.

Helga fékk hvataverðlaun

Loks voru Helgu Olsen, kennara og skautaþjálfara, veitt hvataverðlaun ÍF. Í umsögn ÍF segir:

„Helga Olsen kom að starfi með Íþróttasambandi fatlaðra þegar hún tók að sér þjálfun keppenda í listhlaupi á skautum fyrir alþjóðaleika Special Olympics í Japan árið 2005. Þá starfaði hún sem skautaþjálfari hjá skautafélaginu Birninum. Hún hefur leitt skautastarf fyrir fatlaða á Íslandi og starfar nú hjá skautadeild Aspar. Þar æfa einstaklingar með mismunandi fötlun og í gegnum skautastarfið hafa fjölmargir Íslendingar, fengið tækifæri til þátttöku á mótum innanlands og erlendis.

Helga Olsen fékk hvataverðlaun ÍF.
Helga Olsen fékk hvataverðlaun ÍF. Ljósmynd/ÍF

Helga hefur verið sérlega ötul við að ná til sérhæfðra skautaþjálfara og dómara og fá þá í lið með sér í skautastarfi fyrir fatlaða. Hún hefur með góðu fólki skipulagt alþjóðleg skautamót á Íslandi fyrir alla fötlunarflokka og verið mjög virk í að efla greinina fyrir einstaklinga með fötlun / sérþarfir. Hún er í hlutverki íþróttagreinastjóra Special Olympics á Íslandi í skautaíþróttum og sinnir því hlutverki af miklum krafti.

Helga hefur sem kennari staðið að skólaverkefni í samstarfi við Special Olympics á Íslandi en verkefnið tengdi saman nemendur og keppendur sem tóku þátt í alþjóðavetrarleikum Special Olympics. Hólabrekkuskóli hlaut verðlaun fyrir verkefnið 2013. Helga hefur aftur sett af stað skólaverkefni sem tengist alþjóðavetrarleikum Special Olympics í Austurríki árið 2017 þar sem verða 4 íslenskir keppendur.  Þrátt fyrir að skautaverkefnið sé upphaflega innleitt gegnum Special Olympics á Íslandi hefur ávallt ríkt sú gegnumgangandi stefna að verkefni eiga að vera í þágu allra fötlunarhópa og Helga hefur fylgt því mjög vel eftir í sínu starfi. 

Íþróttasamband fatlaðra þakkar Helgu fyrir sín mikilvægu störf og hún er sannarlega vel að þessu komin.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert