Bryndís í sextánda sæti

Bryndís Rún Hansen.
Bryndís Rún Hansen.

Bryndís Rún Hansen hafnaði í sextánda sæti í 50 metra flugsundi á heimsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug í Windsor í Kanada en undanúrslitum í greininni var að ljúka.

Bryndís synti á 26,38 sekúndum og varð síðust þeirra sem komust í undanúrslitin en til að komast í átta manna úrslit þurfti að synda á 25,76 sekúndum. 

Bryndís bætti fimm ára gamalt Íslandsmet sitt í greininni í undanrásunum í dag þegar hún hafnaði í 15. sæti á 26,22 sekúndum. 

Besta tímann fékk Kelsi Worrell frá Bandaríkjunum sem synti á 25,18 sekúndum. Keppendur í greininni voru 77.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert