Eygló endaði í 22. sæti

Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Eygló Ósk Gústafsdóttir. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Eygló Ósk Gústafsdóttir hafnaði í 22. sæti í 50 metra baksundi á heimsmeistaramótinu í 25 metra laug í Windsor í Kanada í dag.

Hún synti á 27,44 sekúndum og var aðeins 4/100 úr sekúndu frá Íslandsmeti sínu í greininni sem hún setti í boðsundi á fyrsta degi mótsins. 

Til að komast í undanúrslit sextán bestu hefði Eygló þurft að synda á betri tíma en 27,01 sekúndur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert