Ólafía og Júlían íþróttafólk Reykjavíkur

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Júlían J.K. Jóhannsson með verðlaun sín …
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Júlían J.K. Jóhannsson með verðlaun sín í dag. mbl.is/Ófeigur

Þau Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Júlían J.K. Jóhannsson voru nú rétt í þessu útnefnd íþróttafólk Reykjavíkur árið 2016 við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu.

Ólafía Þórunn er kylfingur úr GR sem hefur verið á allra vörum síðustu vikur. Hún var á dögunum fyrst íslenskra kylfinga til að vinna sig inn á PGA mótaröðina í golfi. Hún er Íslandsmeistari kvenna í golfi og setti mótsmet á Íslandsmótinu með því að leika á -11 samtals.

Júlían er kraftlyftingamaður úr Ármanni. Hann varð heimsmeistari í réttstöðulyftu í flokki fullorðinna og heims- og Evrópumeistari ungmenna á árinu ásamt því að setja ótal Íslands- og Norðurlandamet. Hann er stigahæsti íslenski kraftlyftingamaðurinn frá upphafi.

Lið ársins var valið körfuknattleikslið KR í karlaflokki sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari á árinu.

Frá árinu 1979 hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur staðið að vali á Íþróttafólki Reykjavíkur og er þetta því í 38.sinn sem haldin er hátíð af þessu tilefni. Þetta var í fjórða sinn kjörin Íþróttakarl og Íþróttakona Reykjavíkur voru valin.

Liðin sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2016:

·           Ármann – Bikarmeistarar í liðakeppni í áhaldafimleikum karla

·           Ármann – Bikarmeistarar í liðakeppni í áhaldafimleikum kvenna

·           GR – Íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna í golfi

·           ÍR – Bikarmeistarar í keilu kvenna

·           ÍR – Íslands- og bikarmeistarar í keilu karla

·           Júdófélag Reykjavíkur – Bikarmeistarar í sveitakeppni karla

·           Júdófélag Reykjavíkur – Bikarmeistarar í sveitakeppni kvenna

·           Keilufélag Reykjavíkur – Íslandsmeistarar í keilu kvenna

·           KR – Íslands- og bikarmeistarar í körfuknattleik karla

·           KR – Íslandsmeistarar í liðakeppni kvenna í borðtennis

·           TBR – Íslandsmeistarar í liðakeppni beggja kynja í badminton

·           Valur – Bikarmeistarar í handknattleik karla

·           Valur – Bikarmeistarar í knattspyrnu karla

·           Víkingur – Íslandsmeistarar í liðakeppni karla í borðtennis

·           Þórshamar – Íslandsmeistarar í kata karla

Einstaklingarnir sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2016:

·           Aníta Hinriksdóttir, ÍR

·           Anton Sveinn McKee, Ægir

·           Árni Björn Pálsson, Fákur

·           Ásdís Hjálmsdóttir, Ármann

·           Brynjar Þór Björnsson, KR

·           Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægir

·           Helgi Sveinsson, Ármann

·           Irina Sazonova, Ármann

·           Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, Ármann

·           Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert