Anton fékk brons í Knoxville

Anton Sveinn McKee.
Anton Sveinn McKee. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Anton McKee fékk í gærkvöld bronsverðlaun í 100 yarda bringusundi á Suðaustur-meistaramótinu í sundi sem nú stendur yfir í Knoxville í Tennessee-ríki Bandaríkjanna.

Anton synti vegalengdina á 52,28 sekúndum og komst á verðlaunapall í fyrsta skipti í þessari grein á mótinu. Hann keppir aftur á mótinu í dag og þá í 200 yarda bringusundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert