Allir vita að hann er skíthæll

Conor McGregor rotaði Jose Aldo á 13 sekúndum á sínum …
Conor McGregor rotaði Jose Aldo á 13 sekúndum á sínum tíma. AFP

Brasilíski bardagamaðurinn Jose Aldo er ekki mikill aðdáandi Conor McGregor. McGregor varð heimsmeistari í fjaðurvigt á sínum tíma með sigri á Aldo og hefur verið mikill hiti þeirra á milli allar götur síðan. 

McGregor er þessa dagana í viðræðum um að berjast við hnefaleikamanninn Floyd Mayweather, sem er eitthvað sem Aldo er ekki sérstaklega spenntur fyrir. 

„Þessi bardagi mun aldrei eiga sér stað. McGregor er samningsbundinn UFC og þeir leyfa þetta aldrei,“ byrjaði Aldo, áður en hann fór að skjóta vel á Írann. 

„McGregor er með slæmt orðspor. Írar eru þeir einu sem líkar vel við hann. Í Brasilíu og öðrum löndum heldur enginn með honum og enginn lítur á hann sem meistara. Það vita allir að hann er skíthæll,“ sagði Aldo. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert