BH Innri fegurð meistari í A-deild

BH Innri fegurð er Íslandsmeistari.
BH Innri fegurð er Íslandsmeistari. Ljósmynd/BSÍ

BH Innri fegurð er meistari í A-deild í liðakeppni í badminton eftir harða keppni við TBR/Hamar Öllara sem höfnuðu í 2. sæti. 

Innri fegurð fékk fimm stig á meðan TBR/Hamar var með fjögur. TBR Rostungar höfnuðu í 3. sæti og BH Kögglar í 4. og síðasta sæti. 

Orri Örn Árnason, Kristján Kristjánsson, Kjartan Einarsson, Þórður Skúlason, Daníel Ísak Steinarsson, Anna Lilja Sigurðardóttir, Irena Ásdís Óskarsdóttir og Halla María Gústafsdóttir skipa lið BH Innri fegurðar. 

TBR Hákarlar báru sigur úr býtum í B-deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert