Öruggir sigrar hjá KA

Frá leik KA og Þróttar í gær.
Frá leik KA og Þróttar í gær. Ljósmynd/Þorgeir Tryggvason

KA sigraði Þrótt Reykjavík 3:0 í Mizuno-deild kvenna í blaki á Akureyri í gær. Karlalið norðanpilta sigraði Þrótt R/Fylki, einnig 3:0.

Fyrsta hrinan í kvennaleiknum var jöfn og spennandi en KA endaði hrinuna af krafti og vann hana 25:15. Spennan var talsverð í annarri hrinunni en KA seig fram úr þegar staðan var 17:17 og tryggði sér sigur, 25:20.

KA hafði síðan talsverða yfirburði í þriðju hrinu og vann hana 25:14. 

Stigahæst í liði Þróttara var fyrirliðinn Sunna Þrastardóttir með 5 stig og stigahæst í liði KA var einnig fyrirliðinn Hulda Elma Eysteinsdóttir með 14 stig.

Í karlaleiknum höfðu heimamenn mikla yfirburði í fyrstu hrinu og unnu hana 25:8. Önnur hrinan var aðeins jafnari en í stöðunni 16:14 stungu heimamenn af og unnu 25:16. KA vann þriðju hrinuna af öryggi, 25:17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert