Sævar fyrstur Íslendinganna

Sævar Birgisson og Brynjar Leó Kristinsson
Sævar Birgisson og Brynjar Leó Kristinsson Ljósmynd/Einar Þór Bjarnason

Sævar Birgisson kom fyrstur í mark af íslensku keppendunum í sprettgöngu karla á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum í Lathi í Finnlandi í dag.

Sævar hafnaði í 92. sæti af 154 keppendum í göngunni og gekk vegalengdina á 3:47,30 mínútum en þrjátíu efstu komust í úrslit og til að ná því þurfti tímann 3:22,09 mínútur.

Brynjar Leó Kristinsson hafnaði í 115. sæti á 4:00,98 mínútum og Albert Jónsson varð í 123. sæti á 4:08,33 mínútum.

Besta tímann fékk Sergei Ustiugov frá Rússlandi en hann vann gönguna á 3:11,72 mínútum og var tæpum þremur sekúndum á undan næsta manni, Finn Haagen Krogh frá Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert