Bláa lónið í samstarf við Ólafíu

Grímur Sæmundsen og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Grímur Sæmundsen og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Bláa lónið og kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafa gert tveggja ára samstarfssamning en tilgangur hans er að veita Ólafíu stuðning við keppni og æfingar til að auðvelda henni að ná markmiðum sínum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu. Þar er haft eftir Ólafíu að vörumerkið Blue Lagoon sé þekkt um allan heim og falli vel að áherslum hennar og golfíþróttarinnar.

Þá segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, að árangur Ólafíu hafi vakið verðskuldaða athygli og hún sé frábær fyrirmynd.

„Hluti samstarfsins felst í því að Ólafía mun flytja fyrirlestra fyrir starfsfólk Bláa Lónsins. Við hjá Bláa Lóninu erum mjög stolt af því að eiga samstarf við þennan frábæra kylfing.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert