Birgit vann brons og jafnaði Íslandsmetið

Birgit Rós Becker.
Birgit Rós Becker. Ljósmynd/Kraft

Birgit Rós Becker vann til bronsverðlauna í hnébeygju á Evrópumeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum, en hún keppti í -72 kg flokki.

Birgit fór nokkuð létt með allar þrjár tilraunir í hnébeygjunni og endaði á að jafna eigið Íslandsmet sem er 165 kg, en sú þyngd landaði henni bronsinu. Í bekkpressunni jafnaði hún sinn besta árangur í annarri tilraun með 77,5 kg, en náði ekki 80 kg í þeirri þriðju.

Vegna meiðsla tók Birgit aðeins eina létta tilraun með 75 kg í réttstöðulyftu. Hún hafnaði því í 9. sæti með 317,5 kg, sem er nokkuð langt frá hennar besta sem er 402,5 kg.

Sigurvegarinn í flokknum var Svíinn Isabella von Weissenberg, sem sigraði á nýju Evrópumeti með 495 kg

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert