Bardagamaðurinn Conor McGregor segist vera meira en tilbúinn í hnefaleikabardaga við Floyd Mayweather, en viðræður um bardaga þeirra á milli hafa staðið yfir lengi.
McGregor hefur aldrei barist sem atvinnumaður í hnefaleikum, en hann er vinsælasti maðurinn í sögu UFC, þar sem keppt er í blönduðum bardagalistum. Mayweather hefur að sama skapi barist 49 sinnum sem atvinnumaður í hnefaleikum og unnið alla bardaga sína.
Það búast því flestir við öruggum sigri Mayweather, en McGregor er ekki á því.
„Ég ætla að stöðva Floyd Mayweather og þið þurfið öll að draga orðin ykkar til baka. Það veit enginn í hnefaleikum hvað ég get, ég get boxað og þið munuð horfa á mig taka yfir hnefaleikana.“
„Treystið mér, ég er 28 ára, hávaxinn, með langan faðm og ég er stórhættulegur í höndunum,“ sagði McGregor.