Nú fer að líða undir lok í Mizuno-deildum karla og kvenna í blaki. Ljóst er að karlalið Stjörnunnar er í efsta sæti deildarinnar eftir sigur á HK. Það er ekki enn ljóst hver vermir efsta stæti deildarinnar í Mizuno-deildinni í blaki.
Efstu fjögur liðin í Mizuno-deild karla og kvenna halda áfram í Úrslitakeppni Íslandsmóts Blaksambands Íslands. Lið Aftureldingar sótti KA-strákana heim um helgina og spiluðu liðin tvo leiki. Einn í gærkvöldi og einn í dag.
Lið Aftureldingar og KA hafa bæði spilað 18 leiki í Mizuno-deildinni. Afturelding er með 20 stig í fjórða sætinu og KA 18 stig í fimmta sætinu. Það hefði því dugað Aftureldingu að sigra fyrri leikinn 3-1 eða 3-0 til þess að tryggja sig áfram í úrslitakeppnina. Hins vegar komu heimamenn ansi ákveðnir til leiks og unnu báða leiki nokkuð örugglega, 3:0. Þeir sitja því í fjórða sæti deildarinnar og eru þar af leiðandi komnir áfram í úrslitakeppnina.
KA-stelpurnar tóku einnig á móti kvennaliði Aftureldingar í hörkuleik í dag. KA-stelpurnar komu ákveðnar til leiks og unnu fyrstu hrinuna nokkuð örugglega. Hins vegar vann Afturelding næstu þrjár hrinur en þurfti að berjast fyrir hverju stigi, en vann þar af leiðandi leikinn 3:1. Þar af leiðandi er ljóst að KA-stelpurnar komast ekki áfram í úrslitakeppnina.