Anton Sveinn komst í úrslit

Anton Sveinn McKee er að gera það gott á sterku …
Anton Sveinn McKee er að gera það gott á sterku móti í Bandaríkjunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Ægi, tryggði sér sæti í úrslitum í 200 yarda bringusundi á NCAA mótinu sem fram fer í Bandaríkjunum um helgina.

Anton Sveinn synti á tímanum 1:51,99, en það er næstbesti tíminn inn í úrslitin. Anton Sveinn syndir í úrslitum í kvöld, en NCAA mótið er talið sterkasta sundmót Bandaríkjanna á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert