Serena Williams er ólétt

Serena Williams fagnar úrslitastiginu á Opna ástralska meistaramótinu í janúar.
Serena Williams fagnar úrslitastiginu á Opna ástralska meistaramótinu í janúar. AFP

Serena Williams, ein stærsta tennisstjarna heims, birti heldur óræð skilaboð á samskiptamiðlum í dag og virðist hún hafa farið ansi óhefðbundna leið til þess að opinbera það að hún sé ólétt.

Hún birti mynd af sér á Snapchat þar sem hún sýnir magann og skrifar við „20 vikur“. Um leið fóru aðrir miðlar á hliðina þar sem henni voru sendar hamingjuóskir.

Serena keppti síðast á Opna ástralska meistaramótinu í janúar og stóð þar uppi sem sigurvegari og var því orðin barnshafandi þegar mótið hófst. Hún er gift Alexis Ohanian sem er einn af stofnendum Reddit-vefsíðunnar.

Serena hefur unnið 23 risatitla, fleiri en nokkur önnur síðan opnu meistaramótin hófu göngu sína árið 1968.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert