Hulda og Viktor stigameistarar

Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson.
Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson.

Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum í opnum og aldurstengdum flokkum var haldið í Smáranum í Kópavogi í dag. Viktor Samúelsson, KFA, varð stigameistari í karlaflokki og Hulda B. Waage, KFA, varð stigameistari í kvennaflokki.

Stigameistarar í unglingaflokki komu einnig úr KFA, en Þorsteinn Ægir Óttarsson fékk flest stig í karlaflokki og Þuríður Kvaran Guðmundsdóttir varð hlutskörpust í kvennaflokki. Stigameistari í öldungaflokki varð Jóhann Tómas Sigurðarson úr KFR.

Það voru keppendur úr KFA sem hlutu flest verðlaun á mótinu, en liðið sendi flesta fulltrúa til leiks á mótinu að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert