Kallaði andstæðinga sína helvítis tíkur

Ilie Nastase.
Ilie Nastase.

Rúmenski tennisþjálfarinn Ilie Nasta­se heldur áfram að valda fjaðrafoki í kringum Feb-bikarinn í tennis kvenna þar sem hann er að þjálfa rúmenska liðið.

Nastase var rekinn af vellinum eftir að hafa grætt bresku tenniskonuna Jo Kontu með því að kalla hana helvítis tík meðan á leik hennar við rúmensku tenniskonuna Soranu Cirsteu stóð.

Fúkyrðaflaumur Nastase var slíkur í garð Kontu og Anne Keothavong, fyrirliða breska liðsins, að Kontu kláraði leik sinni við Soranu með tár á hvörmum.

Nastase lét hafa eftir sér rasísk ummæli um Serenu Williams og ófætt barn hennar í gær eins og sagt var frá í þessari frétt á mbl.is:

Nastase var ekki ánægður með umfjöllun breskra fjölmiðla um fyrrgreind ummæli sín og las breskum fjölmiðlamönnum pistilinn í blaðamannaaðstöðu mótsins í morgun og sagði ítrekað að breskir blaðamenn væru heimskir.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert