Víkingur bikarmeistari

Sigurlið Víkings. Frá vinstri: Sindri Þór Sigurðsson, Stella Kristjánsdóttir og …
Sigurlið Víkings. Frá vinstri: Sindri Þór Sigurðsson, Stella Kristjánsdóttir og Magnús K. Magnússon. Ljósmynd/Borðtennissamband Íslands

Bikarkeppni félaga í borðtennis fór fram í TBR-íþróttahúsinu í gær. Sex lið tóku þátt í bikarkeppninni, tvö lið frá Víkingi, tvö lið frá BH og tvö lið frá KR.

Bikarkeppnisfyrirkomulagið er þannig að liðin eru dregin úr einum potti fyrir hverja umferð. Liðin eru skipuð tveimur körlum og einni konu. Eru fyrst spilaðir tveir einliðaleikir milli karla, síðan einliðaleikur milli kvennanna, svo tvíliðaleikur milli karlanna og tvenndarleikur.  Að lokum aftur einliðaleikur milli karlanna.

Leikmenn Víkings höfðu nokkra yfirburði að þessu sinn en lið Víkings A, skipað þeim Magnúsi K. Magnússyni, Sindra Þór Sigurðssyni og Stellu Kristjánsdóttur, mætti í úrslitum liði Víkings B, skipuðu þeim Magnúsi Jóhanni Hjartarsyni, Inga Darvis Rodriguez og Þórunni Árnadóttur. Fór úrslitaleikurinn þannig að lið Víkings A vann 4:2. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert