Fossavatnsgangan, elsta og fjölmennasta skíðamót landsins, fer fram um helgina á Ísafirði. Nú eru 950 þátttakendur skráðir til leiks frá 25 löndum, en gera má ráð fyrir að um 1100 manns muni taka þátt sem er metþátttaka.
Einn frægasti gönguskíðamaður í heimi, Norðmaðurinn Petter Northug jr., er á meðal keppenda í ár, en hann hefur á síðustu árum sópað að sér verðlaunum á bæði heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum. Þá eru einnig sterkar gönguskíðakonur mættar til leiks, þar á meðal Caitlinn Gregg frá Bandaríkjunum sem unnið hefur til verðlauna á heimsmeistaramóti og Britta Johanson Nordgren, ein fremsta skíðagöngukona heims.
Þó að hin eiginlega Fossavatnsganga verði þreytt á morgun laugardag, þá hófst Fossavatnshelgin í gær, fimmtudag, með keppni í 25 km göngu með frjálsri aðferð og svokölluðu Fjölskyldufossavatni þar sem keppt var í 5 km og 1 km göngu. Keppnin fór fram í blíðskaparveðri og við frábærar aðstæður.
Í 25 km göngu með frjálsri aðferð voru úrslit eftirfarandi.
Kvennaflokkur
1. Caitlin Gregg (USA) - 01:16:40.6
2. Britta Johansson Norgren (Svíþjóð) - 01:18:03.9
3. Laura McCabe (USA) - 01:19:38.0
Karlaflokkur
1. Snorri Einarsson - 01:08:36.8
2. Brian Gregg (USA) - 01:09:06.6
3. Jake Brown (USA) - 01:09:36.1
Í 5 km fjölskyldufossavatni voru úrslit eftirfarandi:
1. Hrefna Dís Pálsdóttir - 00:23:36.5
2. Unnur Guðfinna Daníelsdóttir - 00:24:02.9
3. Beth Ireland (Stóra-Bretland) - 00:24:26.3
Keppni í 50 km göngunni hefst klukkan 9 í fyrramálið og búast má við fyrstu keppendum í mark upp úr 11.
Dagskrá helgarinnar og allar helstu upplýsingar um aðgengi að svæðinu og fleira má finna á heimasíðu keppninnar: www.fossavatn.com.