Landsliðsnefnd hefur valið þá 16 einstaklinga sem keppa fyrir hönd Íslands í sundi á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í San Marínó 29. maí til 3. júní.
Íslendingar hafa alla tíð verið mjög sigursælir í sundhluta leikanna og meira en helmingur allra verðlauna Íslands á Smáþjóðaleikum frá upphafi koma úr sundi.
Átta konur og jafnmargir karlar frá Íslandi taka þátt.
Anton Sveinn Mckee gaf ekki kost á sér í verkefnið af persónulegum ástæðum.
Þjálfarar með liðinu verða þeir Jacky Jean Pellerin landsliðsþjálfari og Steindór Gunnarsson. Unnur Sædís Jónsdóttir sjúkraþjálfari fer með til San Marino og Málfríður Sigurhansdóttir verður flokkstjóri sundliðsins.
Keppendur eru eftirtaldir:
Aron Örn Stefánsson SH
Ágúst Júlíusson SA
Bryndís Bolladóttir Breiðablik
Bryndís Rún Hansen Óðni
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson ÍRB
Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi
Hafþór Jón Sigurðsson SH
Hrafnhildur Lúthersdóttir SH
Inga Elín Cryer Ægi
Íris Ósk Hilmarsdóttir ÍRB
Karen Mist Arngeirsdóttir ÍRB
Kristinn Þórarinsson Fjölni
Kristófer Sigurðsson ÍRB
Sunneva Dögg Friðriksdóttir ÍRB
Viktór Máni Vilbergsson SH
Þröstur Bjarnason ÍRB