Jóhann Ingi Hafþórsson
Ríflega 20 manna hópur af íslenskum íþróttamönnum er nú fastur í London vegna bilanna í tölvukerfi flugvallarins síðustu tvo daga. Hópurinn var á leið á smáþjóðaleikana í San Marínó.
Á meðal þeirra strönduðu eru körfuboltalandslið karla og kvenna og nokkrir sundmenn. Mbl.is heyrði í Herði J. Oddfríðarsyni, formanni Sundsambands Íslands en hann er með íþróttamönnunum í London.
„Við erum búin að vera föst í London núna en við vorum að tékka okkur inn á hótel og við verðum hér í eina nótt. Við tökum svo lest Parísar á morgun og þaðan komumst við til San Marínó. Þetta er ríflega 20 manna hópur, það eru bæði sundmenn og svo körfuboltalandsliðið okkar," sagði Hörður.
Mun þetta hafa áhrif á keppendurna?
„Allt svona hefur áhrif. Keppendur mæta til leiks einum degi fyrir fyrsta keppnisdag í staðinn fyrir að mæta deginum fyrr, taka eina æfingu og vera rólegur. Svo er þreyta í fólki og þetta hefur allt áhrif. Við munum hins vegar vera jákvæð og reyna að láta þetta ekki aftra okkur," sagði Hörður.