Sautjándu Smáþjóðaleikarnir voru settir í San Marínó í kvöld en þangað er Ísland mætt með stóran hóp íþróttafólks í fjölmörgum greinum.
Keppni hefst í fyrramálið og stendur til laugardags. Þormóður Árni Jónsson júdókappi var fánaberi Íslands, rétt eins og á Ólympíuleikunum í Ríó á síðasta ári.
Meðfylgjandi myndir voru teknar af íslenska hópnum í San Marínó í kvöld.