Þormóður verður fánaberi

Þormóður árni Jónsson var fánaberi Íslands á setningarathöfninni í Ríó.
Þormóður árni Jónsson var fánaberi Íslands á setningarathöfninni í Ríó. AFP

Þormóður Árni Jónsson, Norðurlandameistari í júdó, mun fara fyrir íslenska hópnum á setningarhátíðinni í San Marínó sem hefst nú klukkan 19:00 að íslenskum tíma. 

Þormóður keppir fyrir Júdófélag Reykjavíkur og er í hópi reyndustu keppenda í íslenska hópnum á þessum leikum. Hann er margfaldur Íslandsmeistari og þrefaldur ólympíufari. 

Þormóður var einnig fánaberi Íslands á Ólympíuleikunum í Ríó í fyrra og þekkir því hlutverkið. 

Þormóður Árni Jónsson.
Þormóður Árni Jónsson. Ljósmynd/ÍSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert