Ísland með öruggan sigur á Spáni

Dagur Gautason skoraði tíu mörk fyrir íslenska liðið.
Dagur Gautason skoraði tíu mörk fyrir íslenska liðið. Ljósmynd/HSÍ

Þá er þriðja keppnisdegi lokið á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Györ í Ungverjalandi. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir keppti í undanriðlum 200 metra hlaups. Þar tryggði hún sig inn í milliriðla með því að verða önnur í sínum riðli á 24,77. Í undanúrslitum varð Guðbjörg þriðja í sínum riðli á tímanum 24,57. Kemur hún inn í úrslitin með sjötta besta tímann úr milliriðlunum. Í þrístökki stökk Helga Margrét Haraldsdóttir 11,57 og bætti hún í leiðinni sinn besta árangur. 

Í áhaldafimleikum stúlkna var keppt í fjölþraut og liðakeppni. Stúlkurnar okkar urðu í 22. sæti liðakeppninnar með 93,35 stig. Í fjölþrautinni varð Sonja Ólafsdóttir efst með 47,50 stig (38. sæti), Margrét Lea Kristinsdóttir var með 45,70 stig (57. sæti) og Tinna Teitsdóttir með 42,65 (74. sæti).

Í handknattleik drengja spiluðu drengirnir við Spánverja. Lokastaðan var 36-27 Íslandi í vil þar sem okkar piltar stungu af í seinni hálfleik. Markahæstur var Dagur Gautason með 10 mörk en allir útileikmenn íslenska liðsins skoruðu í leiknum. Ljóst er því orðið að íslenska liðið varð í þriðja sæti síns riðils og spilar því um 5.-8. sæti á mótinu. Næsti leikur liðsins er á föstudaginn þar sem við mætum Dönum.

Á morgun, fimmtudag, keppir Patrik Viggó Vilbergsson í 400 m fjórsundi og Viktor Forafonov í 100 m skriðsundi. Í frjálsum íþróttum keppa þær Helga Margrét Óskarsdóttir í spjótkasti, Iðunn Björg Arnaldsdóttir í 1.500 metra hlaupi, Helga Margrét Haraldsdóttir í 100 metra grindahlaupi og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir í úrslitum 200 metra hlaups.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert