Stórkostlegur endasprettur hjá Lalonde Gordon tryggði Trínidad og Tóbagó sigurinn í 4x400 metra hlaupi karla á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í London í kvöld. Bandaríska sveitin varð heimsmeistari í kvennaflokki í greininni.
Bandaríkin, sem voru í forystu í karlaflokki áður en Gordon tók á sig rögg, urðu í öðru sæti og breska sveitin varð í þriðja sæti. Breska sveitin vann silfurverðlaun í kvennaflokki og Pólland hreppti bronsverðlaun.