Ólympíumeistari með fyrirlestur hér á landi

Niccolo Campriani.
Niccolo Campriani.

Skotfélag Reykjavíkur fagnar 150 ára afmæli sínu um þessar mundir og af því tilefni verður haldinn fyrirlestur í hádeginu á mánudaginn þar sem meðal annars Ólympíumeistari verður með erindi.

Niccolo Campriani og Petra Zublasing munu halda erindi um ýmsar hliðar skotíþrótta með afreksþjálfun og markmiðasetningu í brennipunkti en þau eru meðal helsta skotíþróttafólks heims síðustu ára.

Niccolo Campriani er tvöfaldur gullverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum í Ríó, auk þess að hafa nælt sér í gull- og silfurverðlaun í London fjórum árum áður. Petra Zublasing hefur, eins og Campriani, unnið til fjölmargra heimsbikar- og Evróputitla, sett bæði heimsmet og ólympíumet og verið kosin skotíþróttaeinstaklingur ársins af alþjóðaskotíþróttasambandinu. Þau hafa æft skotíþróttir frá unga aldri og hafa frá mörgu að segja er tengist afreksíþróttaþjálfun og markmiðasetningu. 

Skotfélag Reykjavíkur, Háskólinn í Reykjavík og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa saman að viðburðinum  í Háskólanum í Reykjavík mánudaginn 21. ágúst kl. 12:00 til 13:30 í sal M209.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert