Fylgist með á EM í Póllandi

Guðmund­ur Helgi Þor­steins­son af­henti Al­eks­and­ar Anatisij­eviv verðlaun­. Guðmund­ur tók þátt …
Guðmund­ur Helgi Þor­steins­son af­henti Al­eks­and­ar Anatisij­eviv verðlaun­. Guðmund­ur tók þátt í að af­henda leik­manna­verðlaun til draumaliðsins að lok­inni úr­slita­keppni fjög­urra liða í meist­ara­deild­inni í Evr­ópu að viðstödd­um 12 þúsund áhorf­end­um.

Guðmundur Helgi Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alþjóða blaksambandinu, situr í framkvæmdastjórn Evrópumóts karla í blaki sem hefst í Póllandi um næstu helgi. Hann verður jafnframt eftirlitsmaður á mótinu.

Mikil eftirvænting ríkir fyrir mótinu í Póllandi, en gríðarlegur áhugi er fyrir blaki í landinu. Ákveðið er að úrslitaleikur mótsins fari fram á knattspyrnuleikvangi í Kraká. Búist er við að 62 þúsund áhorfendur verði á úrslitaleiknum. Ríflega 50 þúsund áhorfendur sáu upphafsleik heimsmeistaramótsins í blaki karla sem fram fór í Póllandi fyrir fáeinum árum.

Guðmundur var framkvæmdastjóri tækni- og þróunarmála hjá FIVB (Alþjóða blaksambandinu) í Lausanne í Sviss frá 2003 til 2015. Hann er eini Íslendingurinn sem hefur sinnt svo háttsettu launuðu starfi hjá alþjóðlegu íþróttasambandi. Síðustu tvö ár hefur Guðmundur Helgi setið í stjórn Blaksambands Evrópu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert