Aftur dæmdur í keppnisbann

Jon Jones.
Jon Jones. AFP

UFC-kapp­inn Jon Jo­nes hefur verið dæmdur í tímabundið keppnisbann eftir að hann féll í annað sinn á lyfjaprófi. Prófið var tekið degi áður en hann sigraði Daniel Cormier 29. júlí síðastliðinn.

Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því að hann hafi tekið inn stera en UFC-samtökin hafa ekki staðfest það. Reynist það rétt á Jones yfir höfði sér allt að tveggja ára keppnisbann.

Jones hefur áður verið dæmdur í keppnisbann en þá virðist sem stinningarlyf hafi fellt hann. Hann sneri til baka eftir það bann nú í júlí en virðist nú aftur á leið í bann. 

Frétt mmafighting.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert