Mímir bætti met Guðna Vals

Kringlukastarinn ungi, Mímir Sigurðsson.
Kringlukastarinn ungi, Mímir Sigurðsson. Ljósmynd/FH

FH-ingurinn Mímir Sigurðsson setti glæsilegt piltamet í kringlukasti í flokki 18-19 ára á Coca Cola-móti FH í gær. Hann kastaði 54,43 metra og bætti piltamet Guðna Vals Guðnasonar um tæpan einn og hálfan metra.

Mímir er á yngra ári í þessum flokki og má jafnvel búast við enn betri árangri hjá honum á næsta ári.

Valdimar Hjalti Erlendsson, FH, bætti sig um tæpa 5 metra og kastaði 54,54 m með 1,5 kg kringlu. Hann er fjórði besti kringlukastarinn í flokki pilta 16-17 ára. Valdimar er á yngra ári í þessum flokki og byrjaði að kasta kringlu á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert