Afturelding og HK meistarar meistaranna

HK er meistari meistaranna í karlaflokki.
HK er meistari meistaranna í karlaflokki. Ljósmynd/Blakfrettir.is

Afturelding er meistari meistaranna í blaki kvenna og HK í blaki karla, en meistarakeppni blaksambands Íslands var haldin í fyrsta skipti í dag. Afturelding hafði betur gegn HK í kvennaflokki og HK hafði betur gegn Aftureldingu í karlaflokki. 

Bikarmeistarar Aftureldingar unnu 3:0-sigur á Íslandsmeisturum HK í kvennaflokki, 25:12, 25:21 og 25:19. María Rún Karlsdóttir var stigahæst hjá Aftureldingu með 18 stig og Matthildur Einarsdóttir skoraði 12 fyrir HK. 

Íslandsmeistararnir í karlaflokki, HK, unnu bikarmeistara Aftureldingar, 3:0. Stigahæstur í liði HK var Gary House með 14 stig, en stigahæstur í leiknum var Alexander Stefánsson, leikmaður Aftureldingar, með 15 stig. HK vann hrinurnar 25:23, 26:24 og 25:18.

Afturelding er meistari meistaranna í kvennaflokki.
Afturelding er meistari meistaranna í kvennaflokki. Ljósmynd/Blakfréttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert